June 4, 2008
Aldrei einfaldara? Við skulum skoða þetta aðeins. Mér þykir ansi gaman að fara í bíó. Segjum sem svo að ég ákveði að fara í Laugarásbíó kl. 22 á virkum degi. Ég vil vera mættur 15 mín fyrir sýningu til að vera nokkuð öruggur um miða og fín sæti í salnum. Þá er þetta áætlunin sem ég fæ upp á straeto.isFrá :Granaskjól 62, 107 Reykjavík                    21:02 Gengið 170 metra Grænamýri                                                                                                                    21:05    Leið 13 Hlemmur                                                                                                                             21:21    Leið 14 Austurbrún v/Hrafnistu                                                                    21:27    Gengið 110 metra
Til: Laugarás                                                                                                                         21:29      Þarna þarf maður að leggja af stað klukkutíma áður en myndin byrjar og ferðin tekur 27 mínútur. Svo þarf að skipta um strætó á leiðinni, ef maður missir af honum missir maður líklegast af bíóinu. Eina jákvæða við þetta er hugsanlega það að ef allt gengur upp og maður kemst á leiðarenda kl. 21.29 þá ætti maður að vera nokkuð öruggur með að fá miða á myndina sem maður ætlar að sjá. En þar sem bíómyndin er líklega búin eftir miðnætti þá get ég ekki tekið strætó heim aftur, þar sem hann er hættur að ganga. Þannig að þetta virkar ekki fyrir mig og gerir mér það ókleift að taka strætó í bíó kl. 22.00. En gerum þá ráð fyrir því að ég ákveði að fara í bíó daginn eftir og þá fyrr. En myndin sem mig langar að sjá er ekki lengur sýnd í Laugarásbíó, heldur einungis í Smárabíó í Smáralindinni. Ég ákveð að fara klukkan 20.00 og ákveð að taka strætó. Hvernig myndi það ganga upp?Líkt og áður vil ég vera mættur korteri fyrir sýningu. Þetta er fljótlegasta leiðin.    Frá : Granaskjól 62, 107 Reykjavík        19:02 Gengið 170 metra Grænamýri                                                                         19:05    Leið 13 Hlemmur (bið 1 mín)                                                19:22    Leið 4 Hamraborg (bið 2 mín)                                          19:35    Leið 2 Smáralind                                                                           19:41    Gengið 30 metraTil:     Smáralind                                                                     19:41 Ég yrði semsagt að taka þrjá strætóa og það tæki mig 39 mín. Ég yrði að leggja af stað um klukkan 19.00 eða klukkutíma fyrir sýningu. Hinn valmöguleikinn sem gefinn er upp felur í sér tvo strætóa og ferðatíma upp á 45 mínútur. Frá :    Granaskjól 62, 107 Reykjavík        18:56 Gengið 170 metra Nesvegur v/Grænumýri                                            18:59    Leið 11 Hlemmur (bið 6 mínútur)                       19:18    Leið 2 Smáralind                                                                              19:41    Gengið 30 metraTil:     Smáralind                                                                                  19:41  Til að komast heim myndi líklega fara á puttanum, það tæki líklega styttri tíma. En segjum sem svo að það myndi ekki ganga upp og ég yrði að taka strætó heim. Ég geri ráð fyrir því að bíóið sé búið um 22.15 þá hljómar það einhvern vegin svona. Frá :    Smáralind                                                             22:27 Gengið 0 metra Smáralind                                                                 22:27    Leið 2 Hlemmur (bið 5 mín)                                     22:53    Leið 13 Kaplaskjól                                                                23:04    Gengið 200 metra
Til:     Granaskjól 62, 107 Reykjavík     23:07  Tveir strætóar og ferðatími upp á 40 mínútur. Ég yrði kominn heim rétt fyrir háttatíma. Þetta þýðir að ég yrði að sitja í heild í strætó a.m.k. 80 mín. sem jafngildir næstum heilli kvikmynd. Þessi bíóferð tæki mig því ca. 4 klukkutíma. Niðurstaða mín er því sú að ég myndi frekar bíða eftir því að myndin komi á DVD en að taka strætó í bíó. Þetta sýnir það svart á hvítu hversu skelfilegar almenningssamgöngur eru í þessari borg. Reyndar veit ég ekki hvort er verra strætókerfið sjálft eða leitarvélin á strætó.is, því hún er gjörsamlega hræðileg.

Aldrei einfaldara? Við skulum skoða þetta aðeins. Mér þykir ansi gaman að fara í bíó. Segjum sem svo að ég ákveði að fara í Laugarásbíó kl. 22 á virkum degi. Ég vil vera mættur 15 mín fyrir sýningu til að vera nokkuð öruggur um miða og fín sæti í salnum. Þá er þetta áætlunin sem ég fæ upp á straeto.is

Frá :Granaskjól 62, 107 Reykjavík     21:02 Gengið 170 metra
Grænamýri                                       21:05 Leið 13
Hlemmur                                          21:21 Leið 14
Austurbrún v/Hrafnistu                       21:27 Gengið 110 metra

Til: Laugarás                                 21:29

Þarna þarf maður að leggja af stað klukkutíma áður en myndin byrjar og ferðin tekur 27 mínútur. Svo þarf að skipta um strætó á leiðinni, ef maður missir af honum missir maður líklegast af bíóinu. Eina jákvæða við þetta er hugsanlega það að ef allt gengur upp og maður kemst á leiðarenda kl. 21.29 þá ætti maður að vera nokkuð öruggur með að fá miða á myndina sem maður ætlar að sjá.

En þar sem bíómyndin er líklega búin eftir miðnætti þá get ég ekki tekið strætó heim aftur, þar sem hann er hættur að ganga.

Þannig að þetta virkar ekki fyrir mig og gerir mér það ókleift að taka strætó í bíó kl. 22.00.

En gerum þá ráð fyrir því að ég ákveði að fara í bíó daginn eftir og þá fyrr. En myndin sem mig langar að sjá er ekki lengur sýnd í Laugarásbíó, heldur einungis í Smárabíó í Smáralindinni. Ég ákveð að fara klukkan 20.00 og ákveð að taka strætó. Hvernig myndi það ganga upp?

Líkt og áður vil ég vera mættur korteri fyrir sýningu. Þetta er fljótlegasta leiðin.

Frá : Granaskjól 62, 107 Reykjavík     19:02 Gengið 170 metra
Grænamýri                                        19:05 Leið 13
Hlemmur (bið 1 mín)                            19:22 Leið 4
Hamraborg (bið 2 mín)                         19:35 Leið 2
Smáralind                                         19:41 Gengið 30 metra
Til: Smáralind                                 19:41 

Ég yrði semsagt að taka þrjá strætóa og það tæki mig 39 mín. Ég yrði að leggja af stað um klukkan 19.00 eða klukkutíma fyrir sýningu.

Hinn valmöguleikinn sem gefinn er upp felur í sér tvo strætóa og ferðatíma upp á 45 mínútur.

Frá : Granaskjól 62, 107 Reykjavík     18:56 Gengið 170 metra
Nesvegur v/Grænumýri                         18:59 Leið 11
Hlemmur (bið 6 mínútur)                       19:18 Leið 2
Smáralind                                          19:41 Gengið 30 metra
Til: Smáralind                                            19:41 

Til að komast heim myndi líklega fara á puttanum, það tæki líklega styttri tíma. En segjum sem svo að það myndi ekki ganga upp og ég yrði að taka strætó heim. Ég geri ráð fyrir því að bíóið sé búið um 22.15 þá hljómar það einhvern vegin svona.

Frá : Smáralind                         22:27 Gengið 0 metra
Smáralind                             22:27 Leið 2
Hlemmur (bið 5 mín)               22:53 Leið 13
Kaplaskjól                             23:04 Gengið 200 metra

Til: Granaskjól 62, 107 Reykjavík 23:07 

Tveir strætóar og ferðatími upp á 40 mínútur. Ég yrði kominn heim rétt fyrir háttatíma. Þetta þýðir að ég yrði að sitja í heild í strætó a.m.k. 80 mín. sem jafngildir næstum heilli kvikmynd. Þessi bíóferð tæki mig því ca. 4 klukkutíma. Niðurstaða mín er því sú að ég myndi frekar bíða eftir því að myndin komi á DVD en að taka strætó í bíó. Þetta sýnir það svart á hvítu hversu skelfilegar almenningssamgöngur eru í þessari borg. Reyndar veit ég ekki hvort er verra strætókerfið sjálft eða leitarvélin á strætó.is, því hún er gjörsamlega hræðileg.

Comments (View)