Byssur og dauði
Bjössi Bjarna var beðinn um að skjóta sig í hausinn um daginn af einum treggáfuðum. Ég fékk svipaðan póst í síðasta mánuði, þar sem mér og samnemendum mínum var óskað alls hins besta í lífinu. Ja, eða svona nokkurn veginn. Hér er brot af þessum sérlega skemmtilega pósti:
“Hafi einhver tekið þetta blað úr rekkanum mínum vil ég óska hinum sama alls hins versta og vona að hann hafi fengið eitthvað út úr því svona áður en hann deyr kvalafullum hægum dauða.”
Ég veit ekki til þess hvort sendandi þessa pósts hafi orðið að ósk sinni. Sumir ættu kannski bara að taka lífinu með aðeins meiri ró.
4 months ago