Mótmæli pt. 2
Enn og aftur langar mig að nota þennan vettvang til að koma á framfæri mótmælum. Til þess ætla ég ekki að lemja neinn eða grýta, ég ætla ekki að setja handklæði á hausinn á mér og tala út um rassgatið, né ætla ég að brjóta lög eða vera með leiðindi á almannafæri. Nei, þar sem ég er friðelskandi maður og sáralítill slagsmálahundur, þá ætla ég að nota þessa síðu mína til að koma fram þessum mótmælum. Einhver gæti haldið að ég ætli að mótmæla íturvöxnu sandkassabörnunum, en svo er ekki. Í dag komst ég að ólýsanlegri mannvonsku, sem fólk á ekki að láta bjóða sér. Skv. lögum eru 15 lögboðnir frídagar á ári hér á landi. En sökum þess hve bjánalegt fyrirbæri tunglið er fylltist það ansi snemma eftir vorjafndægur þetta árið. En það verður til þess að einn af þessum lögboðnu frídögum, uppstigningardagur, lendir á sama degi og annar lögboðinn frídagur. Já, gott fólk, uppstigningardagur er 1. maí!!!! Þetta er að sjálfsögðu með öllu óviðundandi og það til hreinnar skammar fyrir kjörna fulltrúa þessa lands að hafa ekki verið búnir að sjá þetta fyrir og gert viðeigandi ráðstafanir. Ekki bætir það úr skák að þetta ár er einum degi lengra en önnur ár! Svo er þetta algjörlega í andstöðu við hagsmuni námsmanna, sem sitja sveittir yfir námsbókunum á þessum tíma.
Ég einfaldlega krefst þess að alþingismenn þessa lands fari nú að sinna vinnunni sinni og hætti ferðast um allar trissur að hitta erlenda leiðtoga, sem skipta okkur engu máli, og lagi þetta óréttlæti. Þetta aðgerðarleysi íslensku ríkisstjórnarinnar er til háborinnar skammar. Það er lágmarks krafa að þetta fólk vinni. Þetta aðgerðarleysi er farið virkilega að bitna á þegnum þessa lands.
Ég vil biðja fólk þessa lands að rísa upp og mótmæla þessum mannréttindabrotum. Það er kominn tími á það að við mótmælum því sem skiptir okkur raunverulegu máli og látum í okkur heyra.
4 months ago