Efnahagsvandi Íslands í hnotskurn
Hvað heilvita maður mun borga 14.900 kr. til að sjá James Blunt. Sá hinn sami verður líklega úrskurðaður þroskaheftur og vangefinn með greindarvísitölu á við vanskapaða belju. Slíkt fólk á náttúrulega að loka inni og henda lyklinu lengst út á haf. En ef mér skjátlast ekki þá finnst líklega hellingur af svona fólki hér á landi. Já, gott fólk, heimur versnandi fer, það má með sanni segja. Við stefnu hraðbyri til glötunnar.
En ég hef nokkur heilræði handa ykkur þarna úti sem eruð í vafa um þroskastig ykkar. Þannig hef ég útbúið lista yfir 10 atriði sem sýna hvernig verja má 14.900 kr. betur.
- Brenna peninginn
- Kaupa hlutabréf í SPRON. Ég meina, þau lækka varla meira úr þessu.
- Gefa bágstöddum fasteignasölum peninginn, þeir eru víst allir að fara á hausinn.
- Kaupa Dom Perignon kampavínsflösku í ÁTVR og drekka hana fyrir utan Kaupþing. Hlutabréfamarkaðurinn mun líklega hækka við það.
- Kaupa Bluetooth handfrjálsa búnaði fyrir trukkabílstjóra, ég meina þeir verða allir að líta út fyrir að leika í Star Trek.
- Fjárfesta í sprotafyrirtækjum í Simbabwe, ég hef heyrt að það sé næsta efnahagsundrið.
- Borga Hanson bræðrum til að koma með comeback, þeir taka varla meira 14.900 kr. fyrir giggið.
- Kaupa sirka 80 bjóra og gefa Lalla Johns, hann gæti fundið leið til nota þá í skiptum fyrir húsaskjól.
- Ég hef heyrt að Prins Oukele af Taraba héraði í Nígeríu eigi digra sjóði á Spáni en hann vantar peningaaðstoð til að leysa þá út.
- Að búa til músastiga úr peningnum. Það er fátt sem gleður fólk meira en að sjá vel skreytt hús með músastigum þegar það kemur í heimsókn. Það eykur aðeins á ánægjuna ef þeir eru gerðir úr peningaseðlum!