March 17, 2008

Ég mótmæli!

Þar sem þessi síða hefur náð gríðarlegu fylgi og orðspor hennar hefur borist víða sem virtur miðill sem fólk tekur mark á, ætla ég að nota hana til að koma á framfæri ákveðnum mótmælum.

Mótmæli þessi beinast til þeirra einstaklinga sem sjá um tónleikahald á þessu blessaða landi. Ég vil semsagt mótmæla endalausum innflutningi gamalmenna hingað til lands. Ég kæri mig ekki lengur um það að tónleikahaldarar þessa lands hafi okkur að fíflum og féfletti þjóðina með því að bjóða okkur útúr brunna ellilífeyrisþega. Ef ég vil heyra áttræða hruggótta kalla syngja lög sem þeir eru löngu búnir að gleyma hvernig eru sökum kölkunar og áralangrar misnotkunar vímuefna, allt frá trélími til LSD, þá get farið og farið í blokkina sem amma mín býr.

Það eru til betri og ferskari hljómsveitir þarna úti og þá er ég EKKI að tala um heitustu nöfnin í danstónlistinni eða DJ-a sem hafa remixað lög eftir tónlistarmenn eins og Robbie Willams og Aqua.

Comments (View)