February 28, 2008
Þessa mynd sá ég í gær. Hún er eiginlega alltof heimskuleg til að geta talist góð. Hún er í mesta lagi sæmileg, en þó líklegast bara sorp. Það eru nokkur ágæt action atriði inn á milli, en öll kjánalegu atriðin kaffæra þeim. Spennan er ekki mikil, það gleymist líklega að skrifa hana í handritið. Það gleymdist reyndar að setja ansi margt í handritið, það skiptir kannski ekki lengur máli. Ég veit það ekki. Orðið kjánalegt lýsir þessari mynd kannski best. Já, kjánaleg. 
Annars þakka ég Hannesi fyrir að bjóða mér á þessa Microsoft nördasýningu. 

Comments (View)
February 26, 2008
Ég hélt að heimurinn væri búinn að gleyma Scott Bakula og yfirgefa hann. Það gladdi mig því óendanlega mikið að sjá hann í gestahlutverki í Boston Legal. Ég fann hvernig það birti yfir hjarta mínu þegar hann birtist á skjánum. Það svartnætti sem heimurinn hefur stefnt í undanfarin ár er á undanhaldi og framundan eru góðir tímar með blóm í haga og umtalsverðri gleði. Heimurinn er, eftir allt saman, ekki að farast. Ég vil taka svo sterkt til orða að okkur sé borgið, borgið frá tortímingu sem leit út fyrir að vera óumflýjanleg. Afhverju segi ég það? Jú, SCOTT BAKULA er mættur aftur!!!!

February 22, 2008
Mig langaði að lýsa deginum mínum með einni mynd. Týpískur dagur laganemans á lesstofunni. Ef ekki væri fyrir Websense gæti síðan verið önnur.

February 19, 2008
Þessa dagana er ég einn heima og þarf því að sjá til þess að ég svelti ekki. Þetta var kvöldmaturinn minn í gær BJ Special beygla.

Þessa dagana er ég einn heima og þarf því að sjá til þess að ég svelti ekki. Þetta var kvöldmaturinn minn í gær BJ Special beygla.

Comments (View)
February 18, 2008
Aðeins að rifja upp gamla tíma. Þarna var maður sko áhyggjulaus með sólheimaglott í Freshjive peysu. Good times!

Aðeins að rifja upp gamla tíma. Þarna var maður sko áhyggjulaus með sólheimaglott í Freshjive peysu. Good times!

Comments (View)
February 16, 2008

Stytt útgáfa af án efa einni bestu mynd sem gerð hefur verið. Í þessari fallegu mynd er hið merkingarfulla orð FUCK sagt 281 sinni.

Comments (View)
February 13, 2008

I am your brother, your best friend forever, singing the songs, the music that you love!!! Þarna er líklega pabbi Willam Hung á ferðinni. Áhugaverður galli sem gaurinn er í, hann myndi henta vel á Vegó. We are Brothers Forever er uppáhaldslagið mitt í dag.

Comments (View)
February 12, 2008

Kanye West á Grammy 2008. Að mínu mati svalasti og frumlegasti hip hop artistinn í dag. Geggjuð gleraugu. Ég þarf að eignast svona.

Comments (View)

Áhugvert band frá Brooklyn, NY. Skemmtilega hressandi indie. Kæmi mér ekki á óvart ef þessir myndu rata á Iceland Airwaves næsta haust. Við skulum sjá til.

Comments (View)