Heitasta partýið í bænum!!
1 year ago
Heitasta partýið í bænum!!
1 year agoEnn og aftur langar mig að nota þennan vettvang til að koma á framfæri mótmælum. Til þess ætla ég ekki að lemja neinn eða grýta, ég ætla ekki að setja handklæði á hausinn á mér og tala út um rassgatið, né ætla ég að brjóta lög eða vera með leiðindi á almannafæri. Nei, þar sem ég er friðelskandi maður og sáralítill slagsmálahundur, þá ætla ég að nota þessa síðu mína til að koma fram þessum mótmælum. Einhver gæti haldið að ég ætli að mótmæla íturvöxnu sandkassabörnunum, en svo er ekki. Í dag komst ég að ólýsanlegri mannvonsku, sem fólk á ekki að láta bjóða sér. Skv. lögum eru 15 lögboðnir frídagar á ári hér á landi. En sökum þess hve bjánalegt fyrirbæri tunglið er fylltist það ansi snemma eftir vorjafndægur þetta árið. En það verður til þess að einn af þessum lögboðnu frídögum, uppstigningardagur, lendir á sama degi og annar lögboðinn frídagur. Já, gott fólk, uppstigningardagur er 1. maí!!!! Þetta er að sjálfsögðu með öllu óviðundandi og það til hreinnar skammar fyrir kjörna fulltrúa þessa lands að hafa ekki verið búnir að sjá þetta fyrir og gert viðeigandi ráðstafanir. Ekki bætir það úr skák að þetta ár er einum degi lengra en önnur ár! Svo er þetta algjörlega í andstöðu við hagsmuni námsmanna, sem sitja sveittir yfir námsbókunum á þessum tíma.
Ég einfaldlega krefst þess að alþingismenn þessa lands fari nú að sinna vinnunni sinni og hætti ferðast um allar trissur að hitta erlenda leiðtoga, sem skipta okkur engu máli, og lagi þetta óréttlæti. Þetta aðgerðarleysi íslensku ríkisstjórnarinnar er til háborinnar skammar. Það er lágmarks krafa að þetta fólk vinni. Þetta aðgerðarleysi er farið virkilega að bitna á þegnum þessa lands.
Ég vil biðja fólk þessa lands að rísa upp og mótmæla þessum mannréttindabrotum. Það er kominn tími á það að við mótmælum því sem skiptir okkur raunverulegu máli og látum í okkur heyra.
1 year agoÞetta er mikið áfall, ég hef alltaf litið upp til þessa manns. En maður hefði nú getað sagt sér að þessi maður væri á einhverjum lyfjum.
1 year agoHvað heilvita maður mun borga 14.900 kr. til að sjá James Blunt. Sá hinn sami verður líklega úrskurðaður þroskaheftur og vangefinn með greindarvísitölu á við vanskapaða belju. Slíkt fólk á náttúrulega að loka inni og henda lyklinu lengst út á haf. En ef mér skjátlast ekki þá finnst líklega hellingur af svona fólki hér á landi. Já, gott fólk, heimur versnandi fer, það má með sanni segja. Við stefnu hraðbyri til glötunnar.
En ég hef nokkur heilræði handa ykkur þarna úti sem eruð í vafa um þroskastig ykkar. Þannig hef ég útbúið lista yfir 10 atriði sem sýna hvernig verja má 14.900 kr. betur.
Sko, Arnold Schwarzenegger breytti ekki nafninu sínu þegar hann meikaði það í Hollywood þannig að það er enginn ástæða fyrir þennan að gera það. Ég meina, það liggur í augum uppi hvernig maður ber þetta fram!!
1 year agoÞar sem þessi síða hefur náð gríðarlegu fylgi og orðspor hennar hefur borist víða sem virtur miðill sem fólk tekur mark á, ætla ég að nota hana til að koma á framfæri ákveðnum mótmælum.
Mótmæli þessi beinast til þeirra einstaklinga sem sjá um tónleikahald á þessu blessaða landi. Ég vil semsagt mótmæla endalausum innflutningi gamalmenna hingað til lands. Ég kæri mig ekki lengur um það að tónleikahaldarar þessa lands hafi okkur að fíflum og féfletti þjóðina með því að bjóða okkur útúr brunna ellilífeyrisþega. Ef ég vil heyra áttræða hruggótta kalla syngja lög sem þeir eru löngu búnir að gleyma hvernig eru sökum kölkunar og áralangrar misnotkunar vímuefna, allt frá trélími til LSD, þá get farið og farið í blokkina sem amma mín býr.
Það eru til betri og ferskari hljómsveitir þarna úti og þá er ég EKKI að tala um heitustu nöfnin í danstónlistinni eða DJ-a sem hafa remixað lög eftir tónlistarmenn eins og Robbie Willams og Aqua.
1 year ago
Ólétt kínversk sveitastelpa fer til borgarinnar að leita réttar síns eftir að eiginmaður hennar er barinn til óbóta af héraðsstjóranum í sveitinni. Átakanleg kínversk mynd frá árinu 1992 um líf fátækra bænda í Kína. Svona gæti lýsingin á þessari mynd verið ef hún væri sýnd á RÚV. En á þennan viðbjóð þarf ég að horfa á föstudaginn!!! Ég er að spá í að taka koddann minn með og leggja mig.
Það eru ekki nein takmörk á mannvonskunni í þessum heimi!!
1 year ago
Ég er farinn að hlakka mikið til næsta föstudags, ég hreinlega get ekki beðið. Að vera í tíma frá 14.40 til 21.25 hefur verið lengi verið draumur hjá mér, sérstaklega á föstudegi.
Núna megið þið öfunda mig!
1 year ago
Þessi blessaði snjóskafl er búinn að vera þarna á planinu upp í skóla svo vikum skiptir og tekur eitt gott bílastæði eða svo. En það er greinilegt að sumir eru úrræðabetri en aðrar. Maður á ekkert að láta þennan andskotans snjó stjórna lífi sínu og ekki sakar ef maður er á stórum jeppa.
Í framtíðinni ætla ég að birta myndir af sniðugum hlutum sem ég sé, svo þessir heitu aðdáendur mínir þarna úti fái smá innsýn inn í mitt líf.
1 year agoÞetta er tekið af matseðlinum í mötuneyti HR á Höfðabakka:
Íslensk kjötsúpa án kjöts
350/-
1 year agoKannski er það bara ég, en er kjötsúpa án kjöts ekki bara eins og gin og tónik án gins?
Ég bara spyr.